Pulsar Ísland er rekið af Nordic Precision ehf, fjölskyldufyrirtæki með yfir 30 ára reynslu úr útivistar- og veiðiheiminum. Frá stofnun fyrir tæpum 10 árum höfum við haft eitt skýrt markmið: að færa íslenskum viðskiptavinum úrvalsbúnað sem sameinar gæði, nýjustu tækni og áreiðanleika.
Nordic Precision ehf hefur selt Pulsar á Íslandi síðan 2009 og verið opinber umboðs- og dreifiaðili frá 2018 – fyrir leiðandi fyrirtæki í digital night vision og thermal tækni á heimsvísu.
Um Pulsar
Pulsar er hluti af Yukon Advanced Optics Worldwide, hátæknirisa með höfuðstöðvar í Litháen og rætur frá 1991. Allar vörur Pulsar eru 100% hannaðar, þróaðar og framleiddar í Evrópu. Pulsar hefur unnið til fjölda verðlauna á undanförnum árum fyrir framúrskarandi hönnun á gæðavörum með nýsköpun og einfalt notendaviðmót að leiðarljósi.
Á stuttum tíma hafa gæði Pulsar vörunnar spurst út á Íslandi og er nú að finna hjá hinum ýmsu viðbragðsaðilum og atvinnumönnum ásamt fjölda útivistar- og veiðimanna.
Með náinni samvinnu við Pulsar tryggjum við að íslenskir viðskiptavinir hafi aðgang að nýjustu tækni, áreiðanlegum búnaði og stuðningi sem stenst hæstu kröfur.
Í dag má finna Pulsar búnað hjá fjölmörgum viðbragðsaðilum, atvinnumönnum og ástríðufullu útivistarfólki um allt land. Fyrir okkur er Pulsar ekki bara vara – heldur loforð um að þú sjáir það sem aðrir sjá ekki, með búnað sem stenst hæstu kröfur.