
Einglyrni
PULSAR AXION COMPACT XG30
290.000kr
Axion Compact XG30 er hin gullna miðja Axion Compact línunnar — sami 640×480 (12µm) Lynred skynjari og XG35, en með minni 30mm F1.2 linsu sem sparar bæði pláss og þyngd. Greiningarsviðið nær 1300m og 2–16× stækkun dugar fyrir nær alla raunverulega notkun innan miðlungs færis.
640×400 AMOLED skjár með 8 hitalitum, magnesíum-hús undir 300g og IPX7 vatnsheldni gera tækið að áreiðanlegum vasafélaga jafnvel í vondum veðrum. Hraðskipt APS3 rafhlaða gefur um 7 klst notkun, og Wi-Fi tengingin opnar Stream Vision 2 fyrir straumspilun og deilingu með öðrum.
Hentar best veiðimönnum og náttúruathugendum sem vilja 640 myndgæði í minnsta mögulega formi — án þess að þurfa lengra færi XG35 útgáfunnar. Frábært varaeintak fyrir veiðimenn sem þegar eiga riffilsjónauka með hitamyndun.
Tæknilýsing
- Sensor: 640×480, 12µm
- Linsa: 30mm
- Stækkun: 2–16×
- Hitagreining/Detection range 1300m
- AMOLED skjár 640×400
- IPX7 vatns- og rykþétt
- Hita- og kuldaþol −20°C til 40°C
- Þyngd: 290g


